Hylling

Vorið 1999 fór ég með Hlökk undir Hilmi frá Sauðárkróki, langaði svo óskpalega í bleikálóttskjótt eða þannig. Það kom bleikálótt meri árið 2000 og var hún skírð Hylling, maður sá sko ræktunina í hyllingum!! Þær voru komnar í fóstur að Þingeyrum og hafa verið þar að mestu síðan.

Haustið 2003 var Hylling tekin inn og Tryggvi byrjaði á tamningunni en þá var hún á 4. vetur. Eftir nokkrar vikur hitti hann mig að máli og sagðist nú ekkert lítast á hana og spurði mig hvað ég ætlaði með hana, hún var með nefið niðrí jörðinni og hann hélt hún yrði ómöguleg. Ég sagði honum að halda áfram með hana ég myndi bara geta notað hana sem kellingarhross því auðvitað vantaði mig einmitt slíkt. En nei hún fékk allt í einu áhugann og allur gangur til staðar. Hann var með hana í tvo mánuði fyrir jól og tók hana svo aftur í mars og sýndi hana í kynbótadóm í júní. Þar fékk hún 7.70 fyrir byggingu og 8.08 í hæfileikum. Nóg til að komast á Landsmót!

Hylling fór á Landsmótið 2004 en gerði nú engar gloríur þar. Þar sem hún hafði komið ágætlega út 4. vetra ákvað ég að halda henni og við Tryggvi lögðum í púkk saman og fórum með hana undir Parker frá Sólheimum.

Parkersdóttirin fæddist 1. júní 2005 og er jörp að lit. Hún heitir Hrund og á Tryggvi Björnsson hana.

Þessi mynd er tekin í október 2006 af þeim Hyllingu og Sigurgeiri að Neðra-Seli þar sem hún verður eitthvað frameftir vetri.

Af Hyllingu er það að frétta að hún var í tamningu veturinn 2005-2006 og var sýnd í kynbótadómi í júní 2006. Ekki sýndi hún það sem í henni býr svo ég ákvað að vera ekki að kosta meira uppá hana í tamningu og halda henni frekar. Fyrst fór hún til Krumma frá Blesastöðum en hún náði ekki gangmáli hjá honum og fór hún því til Kolfinns en ekkert gerðist þar heldur. Þá fór hún til Gruns frá Oddhóli og kom þaðan fylfull í október 2006.

Á myndinni hér til hliðar er hún komin í hagann til mömmu sinnar Hlakkar og Hlekks að Neðra-Seli í Landsveit þar sem hún verður eitthvað áfram.