Hugrún
Ég
sá Kormák frá Flugumýri í Reiðhöllinni
á Blönduósi veturinn 2000, hafði svo sem
ekki veitt honum sérstaka eftirtekt áður og ákvað
þá að halda Hlökk undir hann, bæði
vegna þess að hann er kominn af eðalhestinum honum
Kolfinni frá Kjarnholtum og mér fannst hann mjög
fallegur hestur. Var farið með hana norður til Kormáks
og út úr því kom Hugrún vorið
2001. Ég var auðvitað að vonast eftir gráu,
það hafði komið grátt með Kolfinni
en nei bara brún hryssa. Hún heitir Hugrún
af því að hún fæddist á fermingardaginn
hans Heimis en systir hans heitir Hugrún og þá
var hún bara látin heita í höfuðið
á henni í staðin.
Ég hafði verið búin að
ákveða að fara með Hlökk undir Eið frá
Oddhól og kom ég 17. maí til að keyra henni
vestur í Grafarkot. Þá var kalsaveður og
Hlökk ekki endilega fyrir að láta ná sér
frekar en fyrri daginn og hljóp í burtu. Sá
ég þá að hún haltraði og eitthvað
var bogið við hana og þegar við náðum
henni kom í ljós að hún var með heiftarlega
júgurbólgu. Dýralæknirinn kom í
hvelli og sprautaði hana og inn fóru þær,
hún og Hugrún, í hesthúsið hjá
Gunnari og Helgu. Júgrað sprakk og við máttum
gefa folaldinu þrúgusykur og mjólk næstu
daga því merin mjólkaði lítið
á hinu júgrinu. Gunnar gaf henni á morgnana
en ég keyrði á hverjum degi frá Blönduósi
til að gefa henni seinnipartinn, eins og Gunnar hefði ekki
nennt því, nei ég bara vildi fá að
sinna henni líka. Hlökk var inni með folaldið
í 2-3 vikur og þá virtist folaldið vera
farið að fá
nóg frá henni og fengu þær að fara
út og fengu auðvitað sérþjónustu
hjá þeim hjónum. Hlökk fór auðvitað
ekki undir Eið en þar sem Garpur frá Auðholtshjáleigu
var í hólfi á Þingeyrum fyrra gangmál
fór hún bara þangað. Gunnar gat þá
fylgst náið með þeim mæðgum og þær
virtust ætla að koma þokkalega út úr
þessu. Hlökk lærði vel af þessu því
nú er hægt að ganga að henni hvar sem er úti
í haganum. Hugrún lærði líka vel
á þessu og er gæf og skemmtileg og var í
tamningu hjá Tryggva veturinn 2004-2005. Tryggva leist ágætlega
á hana, nokkuð klárgeng, en viljug og virðist
allavega erfa brokkið og fótaburðinn frá móður
sinni.
Hugrún fékk frí sumarið
2005 og fram á haust eins og oft er títt með 4
vetra tryppi. Haustið 2005 ákvað ég að
senda hana í kennslu til Magga Lár og Svanhildar og
fór hún þangað í lok nóvember
og var hjá þeim í rúman mánuð.
Aftur fór hún á Blönduós til Tryggva
en þar sem hún er frekar klárgeng þá
var spurningin um hvort eyða ætti í hana pening
eða ekki. Ég er enn að velta þeim málum
fyrir mér og veit ekki alveg hvað ég á
að gera við hana en það kemur í ljós
veturinn 2006-2007.
|