Hekla
Hekla er fyrsta afkvæmi Hlakkar, mikil tilhlökkun að
fá folald og vorið 1994 kom grá meri undan henni
og Hektori frá Akureyri. Hekla var sýnd einu sinni,
vorið 2000, þá 6 vetra og fékk 7,78 í
byggingu og 7.66 í hæfileikum eða í aðaleinkunn
7,71. Ég held hún hafi átt töluvert inni
en hún var seld til Þýskalands þetta sumar
og hef ég engar spurnir haft af henni síðan.
Myndin hér til hliðar er eina myndin
sem ég á af henni. Þetta er tekið um vorið
áður en hún fór til Þýskalands.
|