Hátíð
Loksins
kom hátíðin sem beðið var eftir, grá
meri fæddist 19. júlí 2003 en alls ekki á
þeim tíma sem hún átti að fæðast
ef Hlökk hefði fengið við þeim hesti sem
hún fór til og var sónuð og sögð
með fyli. Nei nei sá tími var löngu útrunninn,
ég var búin að fara og skoða merina mörgum
sinnum og var hætt að botna í þessu. En loksins
hringir Gunnar og segir mér að það sé
komið folald, hann mátti alls ekki segja mér hvort
það væri meri eða hestur og auðvitað
vonaðist ég eftir gráu merinni sem ég var
búin að bíða svo lengi eftir.
Brunum við frameftir öll fjölskyldan og ég
kasólétt (átti 21. júlí) og jú
er þá ekki þarna svört hryssa. Mikið
var ég glöð og Gunnar hélt það
nú að hún yrði að heita Hátíð,
þvílík hátíð.
En
þá var sagan ekki nema hálfsögð því
Hlökk hafði farið í hólf til Kveiks frá
Miðsitju og sögð með fyli og því létu
Gunnar og Helga hana í hólf með Aski frá
Kanastöðum þegar hún kom heim. Kösturnartíminn
stóðst hins vegar alls ekki ef hún hefði fengið
við Kveik og því lét ég senda blóð
úr Hátíð í DNA próf til að
athuga hvort hún væri undan Aski eða Kveik og útúr
því kom Askur. Þannig að Hátíð
er undan Aski. Þökk sé Gunnari og Helgu annars
hefði Hlökk verið geld það árið
og engin Hátíð.
Ég er bara nokkuð ánægð
með þetta því Hugrún er komin útaf
Kveik svo ég á í henni bæði Kolfinn
og Kveik og svo er Askur því miður fallinn frá
og því gott að eiga undan honum. Hlökk fór
til Forseta frá Vorsabæ þetta sumar en hélt
ekki, var lengi þar syðra og sá ég ekki
folaldið fyrr en undir jól. Þá vildi Gunnar
að ég tæki það inn því það
væri alls ekki stórt. Hátíð var tekið
á hús og kom þokkalega undan vetri en svo náði
hún sér bara vel á strik um sumarið. Hún
er óskaplega góð og gæf og hef ég
líka heyrt því fleygt að hún sé
afskaplega kátt tryppi og hreyfingafallegt.
Fór
í Þingeyra í sumar að heimsækja Hátíð
en hún var þar í góðu yfirlæti
niður á engjum. Ég náðii nokkrum myndum
af henni, en hún er gæf og forvitin og grá :)
Helga tók hana með örðum tryppum
í smá tamningu í október 2006 og virtist
hún auðveld í umgengni og lítur út
fyrir að meira segja ég gæti tamið hana. Hún
verður send eitthvað í tamningu eftir áramótin
2006-2007 bara spurning hver verður fyrir valinu.
Það verður spennandi að fylgjast
með tamingu á henni næstkomandi vetur.
|