Hlökk
Uppáhalds
hrossið mitt til margra ára er Hlökk frá
Hólum sem verður 20 vetra í vor. Mér hefur
alltaf fundist grár litur á hrossum alveg óhemju
fallegur og hafði mikið fyrir því að eignast
gráa meri. Fljótlega eftir að ég flutti
að Hofi í Vatnsdal leið varla sá dagur að
ég suðaði ekki um að kaupa gráa meri og
spurði næstum því hvern einasta mann sem
kom þar að bæ hvort hann vissi um gráa meri
til sölu. Það var ekki fyrr en Maggi Lár,
þá starfandi á Hólum, kom í heimsókn
og hann vissi um gráa meri á Hólum sem var
undan Dömu og Feyki.

Hún var keypt þá á 5. vetri og var ennþá
eiginlega alveg svört enda sagði Maggi þegar við
sóttum hana: ,,Já þær verða nú
báðar (þ.e. ég og merin) orðnar nokkuð
gamlar þegar merin verður orðin grá."
Inni var hún um veturinn og tamin en hún var afskaplega
klárgeng og alltaf mjög stygg.
Mynd tekin í Húnaveri 1992.
Hlökk
fór í kynbótadóm 1992 og fékk
þá 7,50 í byggingu og 7.89 í hæfileikum.
Ekki hægt að telja hana í flokk fegurðardísa.
Veturinn 1992-1993 var hún send til Trausta Þórs
Guðmundssonar og fór þá um vorið 1993
aftur í kynbótadóm og fékk þá
7,48 í byggingu en 7.97 í hæfileikum. Þetta
sama sumar fór Trausti Þór með hana á
Fjórðungsmót á Vinheimamelum og þar
varð hún 11. í fjórgangi, maður var
nú hálf spældur. Myndin hér að ofan
er tekin við það tilefni.
Ákveðið
var að hún færi í folaldseignir eftir þetta
mót og var henni haldið vorið 1993 undir Hektor frá
Akureyri. Hennar fyrsta afkvæmi var Hekla og á hún
nú 11 afkvæmi og tvö af þeim hafa hlotið
1. verðlaun, þau Hríma og Hrymur en auk þeirra
á hún áðurnefnda Heklu, Hljóm, Hug,
Hlyn, Hyllingu, Hugrúnu, Hendingu og Hátíð.
Síðastliðið vor var hún geld en nú
í vor fæddist henni enn ein merin, Hildur. Myndin hér
að ofan er tekin nú í maí af þeim
Hrímu með sinn jarpa hest, Hlökk með Hildi og
Hyllingu sem kastar í júní.
Það
er búið að vera skemmtilegt að "rækta"
undan Hlökk, tryppin hafa komið vel út og ég
alltaf að bíða eftir fleiri gráum merum þar
sem tvær elstu hryssurnar, sem eru báðar gráar,
voru seldar. Eftir 4 hesta fæddust merar 4 ár í
röð og loksins kom sú gráa, enda heitir hún
Hátíð. Ræktunin hefur nú ekki gengið
áfallalaust fyrir sig því vorið sem Hugrún
fæddist fékk hún heiftarlega júgurbólgu
og sprakk á henni annað júgrað og voru þær
mæðgur inni í u.þ.b. tvær vikur. Styggðin
snarlagaðist við það og er hægt að ganga
að henni úti í haga hvenær sem er. Þetta
vor var ætlunin að fara með hana undir Eið frá
Oddhól en vegna júgurbólgunnar fór hún
undir Garp frá Auðsholtshjáleigu, svo sem ekkert
verra allavega lítur tryppið vel út. Júgurbólgan
virðist ekki hafa skemmt á henni júgrað því
hún hefur alltaf mjólkað á því
þó kannski hún sé ekki í fullri
nit en það hefur ekkert verið skoðað, folöldin
hafa þó ekki verið neitt sérstaklega stór
að hausti svo sennilega mjólkar hún ekki vel.
Hlökk og tryppin héldu til á
Þingeyrum hjá Gunnari og Helgu í mörg ár
og þakka ég þeim kærlega fyrir það.
Hjá Tryggva Björns var hún veturinn 2004-2005
þar sem hann á folaldið sem fæddist það
vor.
Aftur
ákvað ég að lána hana en Maggi Lár
og Svanhildur höfðu komið að máli við
mig um það og var það frekar auðsótt
mál að minni hálfu, tekur mig reyndar langan tíma
að ákveða ýmsa hluti en þar sem það
var nú Maggi sem "prangaði" henni inná
mig í upphafi gat ég nú ekki neitað honum
um að fá undan henni. Hún fór því
til aðalgæjans á landinu, Orra frá Þúfu.
Það fæddist hestur 20. júlí 2006 sem
fékk nafnið Hlekkur. Væntingar voru um gráa
meri en það verður bara næst. Brúnn hestur
er bara mjög gott mál.
Hlökk
hefur haldið til í Neðra-Seli síðan haustið
2005 og verður þar að öllum líkindum eitthvað
áfram. Við förum að heimaækja hana og
ábúendur auðvitað í leiðinni eins
oft og við getum. Þessi mynd var tekin af okkur nóttina
sem hún kastaði, hún leit nú ekkert út
fyrir það þarna. Ég hafði komið að
kíkja á hana og morguninn eftir hringdi Svanhildur
í mig og sagð mér að hún væri
köstuð.
Ég fór með hana undir Klett frá
Hvammi en hún hélt ekki við honum svo það
verður bara að byrja snemma næsta vor. Spurning hver
verður þá fyrir valinu.
|