Ég hef haft áhuga á hestum alveg
frá því ég man eftir mér
og ýmsa hesta hef ég átt í
gegnum tíðina. Þeir hafa komið og
farið eins og gengur og gerist og verða ekki tíundaðir
hér, bara þau hross sem voru og eru í
uppáhaldi hjá mér en það
eru Tígull, Hlökk, Köttur og Gerpla.
Tígull
Fyrsta hestinn minn eignaðist ég 7
ára gömul þegar ég fékk
Tígul hjá Magnúsi fósturföður
mínum í Miðhúsum. Hann var alveg
afskaplega skemmtilegur hestur og var mikið notaður
bæði til útreiða og smalamennskur.
Hann átti alltaf heima í Miðhúsum
og var orðinn gamall þegar hann var felldur.
Þessi mynd er tekin af okkur þegar við
vorum að reka á fjall og vorum bæði
ung.
Hlökk
Uppáhalds
hrossið mitt til margra ára er Hlökk
frá Hólum en hún er
fædd 1985. Grár litur á hrossum finnst
mér afar fallegur og hafði ég mikið
fyrir að eignast gráa meri. Hlökk eignaðist
ég í gegnum Magga Lár sem starfaði
á Hólum á þeim tíma sem
hún var keypt. Hún var tamin og sýnd
en getur nú ekki talist til fegurðardísa
því hún er bara með 7,50 í
byggingu en 7.97 í hæfileikum. Trausti Þór
fór með hana á Fjórðungsmót
á Vindheimamelum 1993 í fjórgang og
þar varð hún 11. Síðan þá
hefur hún verið í folaldseignum og á
nú 12 afkvæmi
og tvö af þeim í 1. verðlaun þau
Hrímu og Hrym en auk þeirra á hún
Heklu, Hljóm, Hug, Hlyn, Hyllingu, sem er með
1. verðlaun fyrir hæfileika, Hugrúnu, Hendingu,
Hátíð, Hildi og yngstur er Hlekkur sem
fæddist vorið 2006.
Köttur
Annan
hest hélt ég mikið uppá en það
var hann Köttur, alveg sérstaklega skemmtilegur
hestur. Hann var fæddur 1984 í Grænuhlíð
austur á Héraði og keypti ég hann
af Sigríki Jónssyni. Köttur var fæddur
að hausti og var afskaplega smár og lítið
taminn fyrr en á 6. vetri. Þá var hann
hrekkjóttur og fékk nafnið Köttur
því hann setti alltaf bakið uppí
loft og hoppaði svo um. Ég hafði mjög
gaman af honum því hann var kattliðugur
og góður klárhestur. Þótt
lítill væri var ekki hægt að nota
hann sem barnahest því hann var sjónhræddur
og maður gat aldrei verið öruggur um að
hann hrekkjaði ekki. Hann reyndar hætti því
þegar hann fullorðnaðist en var þá
ekki mikið notaður. Hann var afskaplega lítið
fyrir manninn og vildi helst ekki láta ná
sér nema þegar var búið að ná
honum útúr hópnum. Köttur var
í Miðhúsum nú seinni ár
og var felldur haustið 2004.
Gerpla
Hin
ræktunarmerin mín er Gerpla
frá Hofi sem er undan Skör frá Hofi
og Kolfinni frá Kjarnholtum. Hún er fædd
1993 og var ekki tamin og sýnd fyrr en 2001 og fékk
hún þá 7,64 fyrir byggingu og 7,78 fyrir
hæfileika eða í aðaleinkunn 7,73. Var
ég ekkert að eyða meiri tími í
tamningu og sendi hana beint undir Gamm frá Steinnesi
og út úr því kom Glódís,
brúnskjótt afskaplega fallegt folald en því
miður drapst hún vorið 2004. Ég seldi
það folald Helgu
í Miðengi
og lánaði henni hana árið 2002 undir
Hrym frá Hofi. Vorið 2003 kom jarpur hestur,
Gustur. Þá var komið að mér
og þar sem ég var ekki búin að lesa
um alla stóðhesta landsins þá fór
hún á næsta bæ eða til Þórodds
frá Þóroddsstöðum og Gáta,
rauð, fæddist vorið 2004. Gerplu var haldið
undir Axel frá Lindarbæ Og fæddist brúnn
hestur 2005 og á Helga það.
Vorið 2006 fæddist aftur brúnn hestur,
Geisli, en hann er undan Huginn frá Haga. Sumarið
2007 fór hún til Álfasteins frá
Selfossi og ætli komi ekki bara skjótt vorið
2007.