Góður vefur |
Slæmur vefur |
|
Vefur ríkisskattsjóra er mjög góður vefur. Útlit vefsins hæfir honum því það eru engar auglýsingar og skum, bara þær upplýsingar sem þurfa að koma fram sem varðar allt í sambandi við skattamál og þess háttar. Allir flokkar eru til hægri og ef farið er í flokka koma upp undirflokkar og þess vegna þarf ekki endilega að notast við leitarvél. Mjög augljóst er að sjá hvaða efni hann hefur að geyma, plús það að sjá flokkana til hægri þá setja þér oftast það sem varðar vefskilum til vinstri og leitarvél hvað varðar fyrirtækjaskrá, ársreikningaskrá þar megin. Þannig að þeir raunverulega hafa flokkana sitt hvoru megin en það er samt flokkað.. Efst uppi til vinstri eru þeir með eins og nýtt efni, leitarvél og áskrift þannig að þeir blanda því ekki saman t.d. við flokkana sem eru til hægri. Leiðarkerfið er skýrt, auðvelt að finna og skilja hvernig efnið er sett fram og gott leitarkerfi og á hverri blaðsíðu er alltaf sett ,,til baka" neðst þannig að þú kemst aftur í fyrra efni. |
Vefur Gítarins er alveg hræðilegur. Útlit vefsins hæfir honum engan veginn, hann er óþolandi blár, hálf röndóttur og maður sér ekki textann nógu vel þess vegna. Og svo er þessi flöktandi texti Gítarinn á síðunni sem fer rosalega í taugarnar á mér. Um leið og þú kemur á síðuna sérðu um hvaða efni hún fjallar en flokkarnir eru út um alla síðu og þarf því að byrja á því að lesa alla síðuna þegar maður kemur inná hana. Engir undirflokkar eða aðrar upplýsingar og því þarf maður að fara inná alla flokkana til að fá upplýsingar. Leiðarkerfið er ekkert þetta er útum alla síðu og engin leitarvél. En neðst á síðu er sett ,,heim" og þá fer maður á upphafssíðu en ekki í þann flokk sem þú varst kannski í og þarft því að byrja uppá nýtt. Sem sagt frekar lélegur vefur. |