Þessi síða er sett upp fyrir fjarkennsluáfanganum
FSH122 í Iðnskólanum í Reykjavík.
Kennari
er Hildur Guðmundsdóttir.
Hér
á þesari forsíðu eru tekin saman þau
atriði sem við gerðum í hverju verkefni fyrir
sig og tenglar í verkefnin hér til hliðar.
Fyrsta
verkefnið okkar var að skoða vefi fyrirtækja og
finna einn góðan vef og annan slæman og átta
okkur á innihaldi þeirra. Sjá má hvaða
vefi ég valdi í tenglinum hér til hliðar:
Verkefni 1.
Í
öðru verkefni gerðum við ferilskrá, CV og
vorum við þar að vinna með töflur, letur
og tengingar út úr síðu. Þar notaði
ég í toppinn mynd af grindverki sem stóð
útí Skjálfandafljóti og fannst það
lýsa "ferli" byggist upp eftir því
sem á líður og eitthvað eftir enn.
Ferilskrá
má sjá undir tenglinum: Verkefni 2.
Í
þriðja verkefni áttum við að gera forsíðu
fyrir skilaverkefni áfangans og einnig vefalbúm, samspil
Photoshop og Dreamweaver.
Toppurinn
er augljóslega af brúsum en mér datt í
hug ca 1 brúsa fyrir hvert verkefni en myndina tók
ég norður í Aðaldal.
Ég ákvað að hafa aðra forsíðu
fyrir albúmið þar sem fram kemur hvaðan þessar
myndir eru en þar nota ég sama toppinn en með öðrum
texta. En það er hægt að fara tvær leiðir
að þeim, þ.e. myndunum, annaðhvort með því
að fara á tengilinn myndir og sjá forsíðuna
líka eða bara fara beint í verkefni 3 og þá
fer maður beint á myndirnar. Mér fannst það
svolítið sniðugt og flott og líka vegna þess
að þá þarf ég ekki að útskýra
myndefnið hérna.
Verkefnin
bætast við eitt af öðru og í 4. verkefni
vorum við að vinna með lítinn vef sem samanstóð
af 3 vefsíðum, gera veltitakka og nota CSS. Ég
gerði auðvitað síðu um skólastrákinn
minn hann Sigurgeir Njál og sjáið þið
allt um það í verkefni 4 hér til hliðar.
Verkefnin
þyngjast smá saman og í fimmta verkefni var
iframe kominn til sögunnar. Einn iframe rammi á index
og opna þar 3 mismunandi vefsíður. Einnig gera
Behaviors glugga sem opnar stærri útgáfu af
mynd. Mjög gaman, notaði áhugamál mitt í
þetta verkefni þ.e. hestana. Í toppmyndina notaði
ég mynd sem ég bjó til í vetur hjá
Hildi en mér fannst hún passa ágætlega
við.
Sjá tengil, verkefni 5, hér til hliðar.
Í
lokaverkefninu mínu ákvað ég auðvitað
fyrir löngu
að
gera vef um ökukennsluna, koma upplýsingum um ökunám
á framfæri og mér sem ökukennara. Markhópurinn
er auðvitað ökunemar og forráðamenn þeirra.
Í verkefninu áttim við að vinna með allt
það sem við höfum lært í vetur ef
þannig bæri undir þ.e. uppsetning texta, krækjur,
töflur, myndir, notkun css, iframe, gluggar, lýsigögn.
Ég ákvað að hafa vefinn eins einfaldan og
hægt var, tenglar um ökunámið áberandi
og til vinstri og tengar um mig, bíl, æfingaverkefni
og tengla að ofan. Setningar í textanum hafði ég
stuttar og myndir ekki of margar. Vildi ekki hlaða of miklu
inná síðurnar.
Er bara
ánægð með útkomuna en hana
getið þið séð í verkefni 6 hér
til hliðar.
|