« Sópa betur | Main | Bara sofandi ..... »
February 14, 2010
Þrennt.....
Hva aldrei skrifað hér ....
Svo ég afsaki mig eitthvað þá sé ég oftast um að setja fréttir á Neistasíðuna og hef þá bara ekkert til að segja hér :o)
Það er svo sem ekkert að gerast nema ef það byrjar á hestar þá er eitthvað um að vera.
Við vorum með mót í Reiðhöllinni sl föstudagskvöld og það gekk bara vel, sæmileg skráning, fáir áhorfendur og ég lét mig hafa það að keppa í fyrsta skipti í 20 ár. Hélt ég myndi fara yfirum, svolítið fyndið því ég stend í því aðra hvora viku að tala um fyrir nemendum mínum að vera ekki svona stressaðir, þetta væri nú bara próf og þau væru búin að keyra fínt svo þau þyrftu nú ekki að vera að stressa sig yfir svona smámunum :o)
Ég var einmitt svona yfir því að láta hafa mig útí þetta en fór mína 3 hringi á Hátíð minni og við náðum neðsta sætinu :o)
Verð sennilega að æfa mig og hana eitthvað betur þó svo ég hafi bara engan áhuga á keppni, hef aldrei haft áhuga á keppni og mun ekki hafa, allt í lagi að vera með hér heima en held ég láti það bara nægja, eða ekki.......
Ég mætti í nýja tækjasalinn í írþóttahúsinu á laugardaginn. Er algjörlega að verða að aumingja líkamlega svo ég sá mér ekki annað fært en að druslast af stað í þetta. Já þetta er sem sagt ársprógramm 3x í viku. Sirrý sagði bara alveg satt að ég væri alveg öll úr lagi gengin, ég vissi það, vildi bara ekki horfast í augu við það.
Ég fór á hreppablótið sem var mjög fínt og ég náði að vaka til 02.00 sem ég hef ekki gert MJÖG LENGI.
Gott að fara í hesthúsið í morgun að gefa :o)
Ég náði sem sagt að gera þrennt nýtt um helgina :o)
Annars bara leiðinlegt veður, fer nú trúlega ekki á Akureyri á morgun eins og ætlunin var.
Posted by Selma at February 14, 2010 06:29 PM