« Mikið að gera í félagslífinu :o) | Main | Nýtti tímann vel í R. »

November 29, 2009

Ég í viðgerð

Meira viðgerðarvesenið á þessu heimili :o)
Ég er með rifinn liðþófa og fékk tíma í R. 2. des til að láta gera við hann. Læknirinn spurði mig hvort ég væri mikið í íþróttum, hahahhahahah glætan, sagði honum að ég skildi nú ekki alveg hvernig liðþófi gæti slitnað við að sitja útí bíl eða heima í sófa ........
Er nú samt alveg mát með þetta því ég fór til læknis hér uppi á sjúkrahúsi og hann sendi mig í rándýra myndatöku til Akureyrar. Var sett í risastóran hólk og mynduð þar í korter sem kostaði mig heilar 12.000, ég fékk næstum taugaáfall.
Bíð heillengi eftir niðurstöðum og loks hringir læknirinn og segir mér alla söguna um rifinn liðþófa og spyr hvert ég vilji fara til að fara í viðtal. Taldi að það væri heldur styttra til Akureyrar. Þegar ég fæ bréf um að koma til Akureyrar 30. nóv. sé ég að það er bæklunarlæknir á Blönduósi og hringi uppeftir og fæ auðvitað bara tíma hjá honum. Gat ekki skilið af hverju ég þyrfti að dröslast til Akureyrar ef ég gat talað við sama lækni (þ.e. bæklunarlækni) á Blönduósi. Mæti hjá honum og hann segir mér strax hvað er að. Ég spurði hann hvort hann þyrfti ekki að lesa út úr rándýru myndunum sem ég hefði fengið á Akureyri. Hann þurfti þess ekki og sagði mér að hann hefði nú bara getað sagt mér þetta. Sem sagt búin að eyða heilum degi á Akureyri í að fara í rándýra myndatöku sem ég hefði getað sleppt. Maður á bara að panta strax hjá sérfræðingum, ekki heimilislæknum. Arggggggg..............

Að öðru þá var skreytinga- og bakstursdagur hér í gær, þeir bræður alltaf jafnduglegir við baksturinn. Erum búin með piparkökurnar
28.11.2009-003.jpg

heilu listaverkin eftir þá :o)
28.11.2009-004.jpg

og svo gerði Sigurgeir súkkulaðibitakökurnar sínar....
28.11.2009-002.jpg

ég gerði engiferkökurnar hennar mömmu sem eru ómissandi og spesíur og eiginlega blöskraði mér í gærkvöldi þegar ég sá allan þennan sykur sem yrði borðaður á þessu heimili fram að jólum.

Í síðustu viku var hittingur hjá saumó, skemmtinefndin fékk Árna á Hofsósi til að koma og kenna okkur að elda tælenskan mat.
Hann eldaði við smökkuðum....... við stelpurnar skárum reyndar niður grænmetið :o)
24.11.2009-134.jpg

eftir 3ja tíma eldamennsku þá borðuðum við allt það sem hann eldaði.
24.11.2009-160.jpg

Frábærlega gaman og geggjað gott.
Myndir í myndaalbúmi :o)

Posted by Selma at November 29, 2009 12:21 PM

Comments

úff hvað ég skil þig varðandi þennan óþarfa lækniskostnað. Einmitt mikið af svona rugl gerði það að verkum að ég fékk tímabundið nóg í mínu læknastússi og er búin að humma læknaheimsóknir af mér í nokkurn tíma. Sko það er ekki bara 12000 kallinn sem hverfur út um gluggann heldur ferðakostnaðurinn og tímaþjófurinn sem fer í þetta allt. Argggggggg. En yfir í jákvæðara hjal, maður bara fær vatn í munninn þega maður les um jólakökurnar.
knús á þig

Posted by: Gunna G at November 29, 2009 12:58 PM

já Gunna mín þú verður að skreppa hingað í kökurnar, eða við gætum hist á miðri leið :o)

Posted by: Selma at November 29, 2009 10:16 PM

þú veist ekki hverju þú ert að bjóða Selma mín. ég er ótrúlegt átgat á góðar kökur

Posted by: Gunna G at November 30, 2009 02:56 PM