« 1.027 km | Main | Svartir ruslapokar »

October 18, 2009

Handavinnuhelgin mikla

Já handavinnan felst í sláturgerð :) og nú er frystikistan full af slátri.Ótrúlegt en satt þá finnst strákunum (og mér) slátur ofboðslega gott og ég hefði það oftar í matinn ef ég myndi eftir því á miðjum degi að ég ætlaði að hafa slátur í matinn.

Talandi um slátur þá skil ég engan veginn þessa langflutninga á grey lömbunum til þess eins að vera drepin og étin.
Er það virkilega hagkvæmt að keyra bíla héðan vestur og austur alla daga eftir lömbum. Hefði haldið það í þessari hagræðingu allri og umhverfisvænu tali þá væri það ekki mjög gáfulegt að keyra alla leið á Vestfirði dag eftir dag eftir þessum greyjum og láta þau standa marga klukkutíma á bíl. Tveggja til þriggja hæða bílar bruna hér fram og aftur allt haustið fullir af fé. Sé þessa hræðilegu 3ja hæða bíla úr Skagafirðinum og hugsa alltaf hvað skildu þessi grey lömb vera búin að vera lengi á bílnum. Eiður bró, sem er með 2ja hæða bíl, var t.d. að fara alla leið á Suðurlandið, sem er miklu styttra en á Vestfirðina, í dag að ná í fé til að fara með í sláturhúsið á Blönduósi. Er ekki sláturhús á Selfossi. Væri ekki bara gáfulegt hjá þessum bændum að slátra bara í sinni heimabyggð. Á Vestfjörðum er að vísu búið að loka öllum sláturhúsum en ég held svei mér þá að það væri samt common sens að opna þau aftur þannig að það sé ekki verið að keyra með þessi grey langar leiðir, ég tala nú ekki um olíueyðsluna alla og umhverfismengunina. Þetta er reyndar búið að vera svona keyrsla í mörg ár og MÉR hefur alltaf þótt þetta fáránleg vitleysa. Minnir mig á það þegar hross voru flutt til Belgíu til þess eins að vera drepin þar.

En allavega er ég búin að gera slátur úr grey lömbunum sem ferðust langar leiðir til þess eins að ég gæti borðað þau :/

Bíllinn minn er að fara enn og aftur í viðgerð í fyrramálið. Nú er það tímareimin en hann er búinn að fara í tvær rúðuskiptingar á þessu ári, ný kúpling og mótorfestingar og auðvitað fullt af smuri. Svo nú hlýtur hann að vera sem nýr og ég get farið á Akureyri á miðvikudaginn að kenna :o)

Posted by Selma at October 18, 2009 08:27 PM

Comments

Mikið hjartanlega er ég sammála þér Selma mín.
Það er ekki einleikið hvað við íslendingar erum vitlausir í þessum hagræðingarmálum. Og alltaf er einhver einn sem á að græða og margir helst að tapa.
Í svona fjárflutningadæmi t.d hlýtur einhver sjálfsagt að telja sig græða en tapið hlýtur að liggja hjá mörgum t.d lambsgreyunum. Hvaða vit er að láta lömb vestan frá Látrabjargi að hanga upp undir 8 klst á bíl( Tek það sem dæmi því ég ræddi við bóndann um daginn.) Hvað græðir bóndinn á því að keyra svo sjálfur alla þessa leið og leggja inn?
Fara svo jafnvel aftur til að ná í heimtekna kjötið sitt. Hvað kostar það svo þegar hann er komin með það heim? Örugglega dýrasta kjöt norðan Alpafjalla. Ekki er nú bensínið eða olían svo ódýr.
Ekki trúi ég að húsakostur sláturhúsa Vestfjarað hafi verið svo vondur að ekki sé hægt að gera þá svo úr garði að hægt sé að slátra allaveganna greyunum í heimabyggð. Hlýtur að skapa einhverjum atvinnu þar.
Jæja ég gæti eflaust röflað endarlaust um þetta sérlega á svokölluðum krepputíma og ég tala nú ekki um út frá umhverfissjónarmiði

Posted by: Gunna G at October 20, 2009 08:42 PM

Eigum við eitthvað að fara út í umræðu um hagræðingu... Við sem búum í sundurlyndis-sýslunni miklu.

Posted by: Berglind at October 22, 2009 04:47 PM