« Endalaust eitthvað :) | Main | Hestar, um hesta....... »
May 10, 2009
Að pakka
Búin að setja í 1 kassa en fann mér eitthvað annað skemmtilegra að gera, þ.e. skrifa fréttina sem er reyndar nokkurra daga gömul :)
Jebb er sem sagt byrjuð að pakka þar sem við erum að flytja um næstu mánaðarmót :)
Festi kaup á þessu húsi. Gummi Bjarna samþykkti lánið :)
Þá er bara eftir að skrifa undir pappíra, við fáum afhent 25. maí :)


Þetta hús er á Mýrarbraut 3, sem sagt down town, svo það er stutt í allt. Skutlið af Brekkunni hættir en mig hefur samt aldrei munuð um að skutlast eitthvað, samanber Reykjavík á föstudag en down town þýðir auðvitað aldrei neitt skutl og svo get ég labbað heim af öllum böllum sem ég fer á og þarf ekki að kaupa mig inn á útitónleika ef þeir væru enhverjir því ég get bara setið í garðinum og hlustað. Ég sem hef nú alltaf verið talsmaður fyrir að eiga heima í sveit burt frá öllu og öllum en hva manni getur nú snúist hugur :)
Hlakka mikið til að komast í eigið húsnæði :)
Posted by Selma at May 10, 2009 12:43 PM
Comments
Er ekki tímabært að skilja eftir sig smá spor hér inni.
TIl hamingju með nýja heimilið. Ég er sveitastúlka en bý í miðbæ Sauðárkróks með fjárhúsinu í 800 m fjarlægð samt, er lífið ekki dásamlegt..
Hlý kveðja úr rokinu á krók
Guðný
Posted by: Guðný á Feyki at May 11, 2009 11:18 AM
Takk takk fyrir þetta Guðný og takk fyrir skemmtilegan hitting á Akureyri um daginn :o)
Jú lífið er frábært og ég hlakka mikið til að fara í nýja húsið :o)
Bestu kveðjur úr rokinu á Blönduósi :o)
Posted by: Selma at May 12, 2009 08:38 AM
Til hamingju mín kæra.
Ég er viss um að þér mun líða vel þarna og hver segir að maður geti ekki verið með kindur þó maður eigi heima í þéttbýli.
Bestu kveðjur
Sigrún Hauks
Posted by: Sigrún at May 12, 2009 03:38 PM