« Datt af baki | Main | Kynbótasýning »

April 19, 2009

Frábær helgi

Fórum á Akureyri um helgina :o)

Fór á föstudag og kenndi krökkunum mínum á Akureyri. Alltaf svo gaman að hitta þau.

Á laugardag var fermingingin hans Magnúsar og byrjuðum við daginn á messu í Akureyrarkirkju. Afar falleg og glaðleg stund.
Veislan var haldin í Þelamerkurskóla og það var algjör snilld. Góður matur, notalegur salur og allt eitthvað svo krúttlegt.
Hér er Valur, afmælisbarn og Jóhanna með prinsinn sinn að bjóða alla velkomna :o)
ferming-magnusar-086.jpg

Krakkarnir skemmtu sér úti enda aðstaðan frábær.
Jenný, Elvar og Bjartmar að róla....
ferming-magnusar-060.jpg

og Magnús strauk smástund úr veislunni og fór í fótbolta ....
ferming-magnusar-174.jpg

svo náðist mynd af þeim nöfnum að rúlla augunum upp.......
ferming-magnusar-162.jpg

Um kvöldið fór ég á Fákar og fjör, opnunarhátíð nýju Reiðhallarinnar
á Akureyri
. Sá þar margt skemmtilegt en eftirminnilegasti hesturinn var Ás frá Ármóti. Sýningin var alveg ágæt nema alltof löng eins þær vilja oft verða.

Í dag komum við svo við hjá Valla og Jóhönnu og svo í bíó og svo heim. Alveg frábær helgi og takk takk fyrir mig :o)

Posted by Selma at April 19, 2009 10:11 PM

Comments

Þessi augnsvipur er HRÆÐILEGUR

Posted by: Bryndís at April 20, 2009 11:08 AM

Nei hann er frábær :o)
Reyndi að ná þeim öllum saman á mynd, þ.e. Magga, Magga, Eið og Val en þeim tókst ekki að rúlla þeim upp samtímis :/

Posted by: Selma at April 20, 2009 10:57 PM