« Öskudagurinn búinn :o) | Main | Apríl handan við hornið :o) »
March 01, 2009
Geggjað veður
Veðrið var algjörlega frábært í dag og við drifum okkur fram í Vatnsdal því þar er fallegast auðvitað :o)

Byrjuðum í Þórdísarlundinum ......
og þar var manni varnað uppgöngu :o)

en náði flottri mynd af Sölku, henni fannst ekkert leiðinlegt heldur :o)

fórum svo í Miðhús og renndum okkur í brekkunni þar, það höfðu allir gaman af því. Fórum í rennukeppni, vita hver kæmist lengst.
Sigurgeir lagður af stað......

geggjað gaman hjá Bjartmari

já maður bara á leiðinni útúr braut :o)

en Eiður vann, hann komst lengst niður á tún :o)

Í gær fór ég á ljósmyndanámskeið hjá Farskólanum svo ég læri eitthvað á þessa fínu myndavél mína. Það var gagnlegt og gaman og seinni parturinn verður næsta laugardag og þá missi ég af ÍS-Landsmóti á Svínavatni, en maður kemst nú ekki í allt :o)
Fimmgangsmótið í liðakeppninni gekk vel, margar skráningar og áhorfendur og allir glaðir með þetta og ég líka ;o)
Posted by Selma at March 1, 2009 10:30 PM
Comments
sá þyngsti kemst alltaf lengst... eða styst!! ;)
Posted by: Bryndís at March 2, 2009 11:14 AM
já pottþétt þyngstur af okkur 4 sem þarna voru :o)
þetta var snilld, hann fór næstum niður á veg :o)
spurning hvort þú gefir honum svona sleða svo hann geti æft sig fyrir næstu keppni......
Posted by: Selma at March 2, 2009 12:06 PM
Ég verð helst að æfa mig með honum. Var einmitt að segja við stelpurnar hvað mig langaði mikið að fara út að renna mér í dag :D
Posted by: Bryndís at March 3, 2009 11:13 PM
Ertu búin að skila verkefninu ;-)
Posted by: Höski lögga at March 6, 2009 10:53 AM