« Sundferð | Main | Öskudagurinn búinn :o) »
February 17, 2009
Meira af hestum :)
Fór á námskeið sl. sunnudag hjá Magga Lár um bygginga og uppstillingu kynbótahrossa, ekki að ég eigi einhver en alltaf gaman að víkka sjóndeildarhringinn :)
Þetta var bara gaman og áhugavert þar sem Maggi er jú búinn að vera í þessum bransa MJÖG lengi og er hafsjór af fróðleik.

Allir sem mættu voru mjög áhugasamir.....

Í gærkvöldi var svo kvöld nr. 2 hjá okkur konunum á reiðnámskeiðinu hjá Sibbu. Það er sko BARA gaman og Sibba frábær kennari. Myndir eru á Neistasíðunni.

og ég alltaf jafn flott á henni Hátíð minni :o)

Í dag er Bjartmar með hor og hósta og erum við bara heima. Hann var reyndar með hor í gær en ég fór nú samt með hann á leikskólann. Hann ætlar að vera orðinn góður á morgun því þá er fótbolti og hann má nú ekki missa af honum :o)
Posted by Selma at February 17, 2009 11:43 AM
Comments
Er Sigurgeir byrjaður að baka?
Posted by: Sigrún Lovísa at February 18, 2009 12:54 PM
já já hann klikkar ekki á því, ég svona rétt komst inn á milli með mína uppskrift :)
Posted by: Selma at February 18, 2009 02:49 PM