« Svolítið kalt ... | Main | Rúnturinn í gær »
February 11, 2009
Svo "bissí"
Við erum orðin svo "bissí" í félagslífinu að það er bara enginn tími fyrir skriftir eða myndir :-| og svo gleymist að segja frá einu og örðu, fékk nú aldeilis að heyra það frá vinkonu minni eftir síðasta saumó. Held kannski að ég sé bara orðin svona frosin, ekki nóg með að það sé frost úti heldur er bara svo skítkalt hér inni að ég fer ekki úr lopapeysunni og lopasokkunum :(
En bæti úr þessu, þ.e. skriftunum :)
Svona er vikan;
Á mánudagskvöldum erum við nokkrar konur á reiðnámskeiði.
Sibba er að kenna og fórum við í fyrsta tímann sl. mánudagskvöld. Svakalega gaman :) Engar myndir náðust nú af því eða þær voru allavega ekki alveg nógu góðar til að setja hér svo það verður bætt úr því í næstu viku.
Sigurgeir er í fótbolta á mánudögum.
Á þriðjudögum er Sigurgeir á reiðnámskeiði í knapamerki 1 eins og ég hef áður sagt :o)
Á miðvikudögum er Sigurgeir á lúðrasveitaæfingum og Bjartmar er í fótbolta með krökkunum af leikskólanum og eru hér nokkrar myndir frá í dag. Ég mætti loksins með myndavélina en áður hafði ég bara farið á hestbak á meðan "þjálfararnir" passa uppá Bjartmar í fótboltanum. Í dag var svo ógeðslega kalt að það var bara ekki verandi úti og líka próf svo ég var bara að kenna í allan dag :)
En hér eru strákarnir á eftir boltanum.....

"þjálfararnir" Stefán Ó og Þórður að segja þeim til :)

og mikið svakalega sem hann veður góður.....

Á fimmtudögum er Sigurgeir í fótbolta og Bjartmar á reiðnámskeiði og á föstudögum gerum við ekki neitt.
Fyrir utan þetta erum við í vinnunni, þ.e. þeir í skólanum og ég pappírast stundum þó aðallega fyrir hádegi og kenni slatta eftir hádegi. Krakkarnir í 10. bekk eru auðvitað ekki búin fyrr en eftir hádegi og þá skrepp ég nokkra rúnta. Fór á Akureyri sl. föstudag og það var mjög gaman að hitta þau sem eru þar. Náði samt ekki eins mörgum tímum og ég ætlaði mér en bara næst. Fór beint á fund hjá LH í Reiðhöllinni þegar ég kom heim og var því orðin svolítið þreytt þegar heim var komið.
Nú þarna inn á milli fer ég stundum á hestbak.......
Framundan er að skreppa á Hvammstanga næsta föstudagskvöld og sjá töltmót sem fram fer í nýju höllinni þeirra. Það verður gaman.
Í næstu viku er svo saumó hjá mér, ég bið bara Sigurgeir um að baka ;)
Posted by Selma at February 11, 2009 09:44 PM
Comments
Svo heldur fólk að það sé allt að gerast í borginni. Það lið myndi ekki "meika" einn mánuð í dagskránni okkar... En okkur leiðist ekki á meðan;o)
Posted by: Berglind at February 12, 2009 10:30 PM
Segðu, hér er sko nafli alheimsins eins og vitum og þess vegna erum við auðvitað hér :)
Posted by: Selma at February 14, 2009 09:30 AM