« Fegin | Main | Drekkur úr fötu »
June 01, 2008
Sól sól skín á mig ;)
Veðrið er bara frábært :)
Á föstudaginn var sumarhátíð á leikskólanum og við mættum auðvitað í fjörið.
Bjartmar fór margar ferðir á þessu þríhjóli, notaði það reyndar sem hlaupahjól og fór hratt :)

Nýr leikvöllur var tekinn í notkun en þar eru 3 stórir sandkassar og krakkarnir fóru öll í sandkassana þegar opnað var inn....

og svo var Skralli trúður mættur á svæðið og vakti lukku ;)

Á miðri hátíðinni hringi Albert og sagði mér að hann væri orðinn afi :)
Snævar Njáll og kærastan hans eignaðust prinsessu þá um morguninn og allt gekk vel.
Innilega til hamingju með það :)
Í gær fórum við í sund á Hvammstanga, svo sem ekkert gaman þar því laugin (útilaug) var köld og ekkert dót til að leika með svo ég tek bara ofan fyrir sundlauginni hér :) Þar kostar hins vegar ekkert í sund fyrir börn yngri en 17 ára :-|
Síðan skruppum við í Reyki til Huldu að kaupa nokkur blóm. Alltaf gott að koma þar, pottþétt í kaffi til hennar í sumar.
Á leiðinni heim fórum við að gefa Háfeta mjólkina sína og það gekk svona glimrandi vel. Fór í dag og kenndi honum að drekka úr fötu :)
Sló garðinn þ.e. túnið í kringum húsið í dag. Ég er reyndar ekki búin því þetta er nú nærri hektari að stærð og tekur nú aðeins meira en einn dag að slá þetta með garðsláttuvél ......
Posted by Selma at June 1, 2008 10:08 PM
Comments
Hæ nín kæra
Ég má til með að kvitta fyrir mig - ég kíki inn nokkuð reglulega til að fá fréttir af þér og þínum - við hittumst sko ekki nógu reglulega.
Sjáumst þó á morgun...
Posted by: Berglind at June 2, 2008 10:28 PM
þú ert svo mikil rúsínus og já hlakka til að hittast í kvöld :)
Posted by: Selma at June 3, 2008 10:09 AM