« Gleðilegt sumar :) | Main | Sumarfrí, ættarmót og fermingar ..... »
April 25, 2008
Útsýnisskífan
Jæja loksins sá ég þessa útsýnisskífu sem er hér uppá Brekku, eða reyndar hér fyrir ofan Brekkuna.
Í vetur kom upp þetta forláta skilti sem segir að það sé útýnisskífa hér uppfrá einhvers staðar, engar meiri merkingar um það.

Er nú búin að fara nokkrar ferðir uppá hæðina hér fyrir ofan
þ.e. upp að Draugagili, ekki orðið vör við þessa útsýnisskífu
og alltaf endað á haugunum :(
Í dag fór Sigurgeir með Berglindi og sínum hreyfistundafélögum í skólanum í hjólatúr hér uppeftir að skoða útsýnisskífuna og gröfina hans Andvara sem var hestur sem synti yfir Blöndu og þetta sýndi hann mér allt saman þegar við fórum heim í hádegismat.
Verð nú að segja það að útsýnisskífan er alls ekki á áberandi stað og engar merkingar að henni. Get alveg ímyndað mér að allir þeir sem ætla að fara þangað endi á ruslahaugunum og þó þeir finni hana þá er bara allt morandi í rusli og útsýnið í suður er bara ruslahaugarnir. Algjörlega ömurlegt að sjá og ekki beint skemmtilegur staður fyrir útsýnisskífuna sem er auðvitað frábært að hafa, hefði mátt setja hana út á bakkanum, norðan við veginn :)
Veit sem sagt núna að við Brekkubúar eru ekki til sýnis :-| og skífan sést þegar maður keyrir upp brekkuna þ.e. í leiðina upp að haugum. Var bara aldrei að horfa þangað :)
Takk takk Berglind að hjóla þarna uppeftir og fræða börnin :)
Posted by Selma at April 25, 2008 09:57 PM
Comments
Halló Brekkubúar.
Það er svo hressandi að fara út að hjóla - eins og þú veist nú sjálf...
Mér finnst svo mikilvægt að börnin viti hvað er í boði hér innanbæjar - eins og t.d. útsýnisskífur með afbragðsútsýni! Sagan af Andvara er nú líka alveg snilld og ekki spillir fyrir að hafa legsteininn hans þarna.
Njótið bara vel - sjáumst á hjólunum.
Kv. Berglind
Posted by: Berglind at April 28, 2008 09:23 PM
Veit þú er frábær og Sigurgeiri fannst alveg rosalega gaman. Það renna nú ekki upp úr honum upplýsingarnar en þetta varð hann að sýna mér :)
Já Berglind mín förum að hjóla þegar hlýnar, spurning hvort við í saumó förum ekki bara út að hjóla saman :)
Posted by: Selma at April 28, 2008 10:20 PM