« Vegagerðin | Main | Þýskaland »
February 18, 2008
Hestar, hestar, hestar :)
Jæja eitthvað líður tíminn......
Var svo "bissí" um helgina að ég man ekki hvaða dagur er í dag.
Föstudagurinn fór eiginlega allur í hesta og að kenna. Fór á hestbak á Hugrúnu og Toppu, það gekk bara fínt. Fór svo að kenna slatta og fór svo aftur uppí Reiðhöll á 1. töltmót vetrarins. Ég var reyndar í miðasölunni svo ég sá nú ekki mikið en allavega úrslitin og þau voru bara góð.
Á laugardaginn tók ég skurk í pappírum og náði að klára slatta. Fór auðvitað aftur á hestbak og á sunnudag fórum við Sigurgeir saman á hestbak. Ætlaði að vera svo dugleg í pappírum á sunnudag en nennti því bara alls ekki þó svo ég ætli að vera búin með þá alla fyrir Þýskalandsför. Fór þess í stað fram að Þingeyrum að heimsækja bændur og auðvitað hana Hlökk mína sem ég hef ekki séð alltof lengi. Tók þessa glimrandi fínu mynd af okkur eða þannig, ekki einu sinni í fókus :)

Fékk gott kaffi hjá Helgu og Gunnari og skoðaði nýja hesthúsið. Ræddum auðvitað bara um hesta. Takk takk fyrir kaffi og spjall :)
Svo er að kenna á Sauðárkrók á morgun.......
Posted by Selma at February 18, 2008 10:28 PM