« 17 sortir | Main | Skruppum »

January 11, 2008

Laumast .......

Það var rosalega notalegt í saumó og allar 17 sortirnar kláruðust :)
Nei á nú karamellusúkkulaðistangir eftir í frystikistunni og er búin að uppgötva það að það er frábært að fá sér kaffibolla og laumast í kistuna og fá sér bita, þeir urðu nú alveg 3 í gær :-|
Þar sem við saumóstelpur eigum svo mikla peninga þá ætlum við að bjóða okkur og köllunum út að borða á Gauksmýri 2. feb.
Nú svo vorum við að plana utanlandsferðina næsta haust, okkur hlakkar svo mikið til að fara aftur að við erum strax byrjaðar að spá í það hvert við eigum að fara.

Þarf að skutlast suður um helgina, þar bíða tvíburarnir þeirra Ellu og Himma eftir að komast í próf :)

Posted by Selma at January 11, 2008 10:04 AM

Comments