« Málað | Main | Glugginn »
December 09, 2007
Jólabjöllurnar
Sædís mín, ég er sko búin með 2 bjöllur......

eru þær ekki bara flottar hjá mér miðað við...... :-|
Fór á Krókinn um daginn (þ.e. fyrir löngu) og sá þessar rosalega flottu hekluðu bjöllur á seríu í glugganum. Ekki málið þessar ætlaði ég nú að gera, keypti garn en það var ekki til heklunál nr. 1,25 svo ég mailaði á stelpurnar í saumó alveg meidei hvort þær gætu lánað mér heklunál. Berglind spurði hvort ég gæti ekki bara notað títuprjóna ;) og lánaði mér heklunál. Aldeilis ætlaði ég nú að fara að hekla en nei nei skildi sko ekki upp né niður í uppskriftinni.
Hitti Ernu alveg óvart og hún fer að spyrja um þessa heklunál mína og sagði mér svo að Sædís væri að fara á námskeið hjá þessari konu sem bjó til bjöllurnar og hún yrði bara að læra að gera þessar bjöllur sem hún og gerði.
Mætti í saumó í síðustu viku með heklunálina og garnið og Sædís kenndi mér og Ernu að hekla þessar bjöllur, bara ekkert mál.
Takk takk Sædís mín að læra þetta og takk Berglind að lána mér heklunál og takk Erna að hafa sent Sædísi í að gera þessar bjöllur á námskeiðinu. Algjörleg snilld að hekla þetta, verð reyndar að nota gleraugun :-| Kannski næ ég á eina litla seríu fyrir jólin :)
Posted by Selma at December 9, 2007 10:36 PM
Comments
Þetta er ekkert smá glæsilegt hjá þér:)
Dáltið betri en sú fyrsta í klúbbnum ha ha
Kveðja Sædís
Posted by: Sædís at December 11, 2007 02:20 PM
Heyrðu enga brandara hér :)
Ég haðfi svo góðan kennara :) takk takk
Posted by: Selma at December 11, 2007 03:00 PM