« Leikhúsferð | Main | Löggan hirti mig :-| »

November 04, 2007

Ekkert nýtt hér

Barasta ekkert að gerast hér :-|

Posted by Selma at November 4, 2007 01:31 PM

Comments

Vá............ hvaða hvaða. Maður bíður norðlenskar frétta alla vikuna, og hvað kemur.
Ekkert að frétta!!!!!!!! Ekkert að gerast!!!!!
Það veitir nú ekkert af því að fara að blása lífi í héraðið ef ekkert er að gerast.
ekki einu sinni týndar rjúpnaskyttur, löggann tekur engan fyrir of hraðan akstur.
ég bara spyr getur þú ekki gert eitthvað í þessu Selma mín?
Maður tapar átthagaástinni ef ekkert gerist:(

Posted by: Gunna at November 5, 2007 10:57 AM

Heyrðu Gunna mín, jú jú það er örugglega eitthvað að gerast úti í henni veröldinni, málið er það að ég umgengst eiginlega bara unglinga og pólverja. Þeir fyrrnefndu fræða mig mikið á ýmsum bíómyndum og tölvudrasli sem ég hef takmarkaðan áhuga á og gleymi jafnóðum og þeir síðarnefndu tala ekki um neitt því þeir tala mest megnis pólsku og hana skil ég nú bara alls ekki.
En ég skal bæta úr þessu alveg á næstunni, þ.e. með fréttirnar ekki læra póslsku :-|

Posted by: Selma at November 5, 2007 01:37 PM

Hey! Það er nú saumó á morgun - aldrei að vita nema eitthvað birti til hjá okkur...
Kv.
Berglind

Posted by: Berglind at November 5, 2007 08:54 PM

já þá fer nú að rætast úr þessu spurning með að mæta með myndavélina á svæðið :)

Posted by: Selma at November 5, 2007 09:29 PM

Jæja góða ég sá allaveganna að löggann á Blós tók einhverja fyrir of hraðan akstur í gær :)
Fínt fyrir þig að skreppa í saumó og dísús ekki bara sauma. Það er líka gaman að bla bla ......
þú veist bara ef það er ekki rætið og ljótt.....

En ég skil að þú nennir ekki að læra pólsku.
Ég lærði 4 orð sl vetur og eg reyni ekki að skrifa þau ( hundur köttur klukka og teppi)´
Eigðu góða viku :)

Posted by: Gunna at November 5, 2007 09:34 PM

Nei nei við sbla bla bla mjög mikið og tölum alrei um aðra......... allavega ekki rætið og ljótt.

ég kann nú 3 orð í pólsku það er hringtorg, já og nei.....
Takk takk sömuleiðis Gunna mín.

Posted by: Selma at November 6, 2007 09:38 AM