« Hross af fjalli | Main | Höfn er það :) »

October 02, 2007

10 ára afmælið :)

Það eru heil 10 ár síðan Sigurgeir var skorinn úr mér eftir mjög langa og stranga nótt og eftir að hafa heimtað hníf og sagt þessu "liði" að ég myndi aldrei láta rollu vera svona lengi að bera. Nema hvað hann var svo tekinn með bráðakeisara kl. 11.43 eftir að hafa verið kominn í hjartaflökt og kúkað í legvatnið.
Vá hvað þessi 10 ár voru fljót að líða.
Áttum algjörlega frábæran afmælisdag sem byrjaði á því að hann tók upp pakkann sinn þegar hann vaknaði....

02.10.2007-005.jpg

og eftir skóla var kakan, sem var bökuð
og kremuð í gær, skreytt

02.10.2007-008.jpg

smá nammi sett í kerrunni......

02.10.2007-012.jpg

nú svo var haldið í Íþróttahúsið - ekki veitir nú af þegar maður er 10 ára og vill bjóða öllum (hvaðan skildi hann hafa það) ég hef nú líka verið talsmaður fyrir því að bjóða í tugsafmælin og það hlýtur að eiga við 10 ára líka :)

búin að fara í Tarsanleik sem Elínborg, Bergþóra og Maggý sáu um, takk takk stelpur :)

02.10.2007-023.jpg

og afmælissöngurinn sunginn og kakan/nammið borðað :)

02.10.2007-031.jpg

Algjörlega frábær dagur og takk takk fyrir komuna
og alla skemmtunina með okkur :)

Posted by Selma at October 2, 2007 09:28 PM

Comments

Til hamingju með strákinn stóra.
Já, tæm flæs :)

Posted by: Harpa E at October 3, 2007 01:42 AM

Innilega til hamingju með drenginn! Aldeilis flottur strákur með flotta köku!

Posted by: Jóhanna Snorrad. at October 4, 2007 10:50 AM

Takk takk, já þetta var meiriháttar skemmtileg afmælisveisla og kakan var snilld :)

Posted by: Selma at October 4, 2007 10:59 AM