« Gleðilegt sumar | Main | Ársþing ökukennarafélagsins »

April 25, 2007

Námskeið og aftur námskeið

Ótrúlegt hvað manni dettur í hug.....

Ákvað að skella mér í bifhjólakennsluréttindin.
Þau verða haldin í Danmörku í júní :)
Ég þarf reyndar að klára bifhjólaprófið fyrst.
Fer bara í það í næstu viku.

Er þessa dagana á örðu námskeiði, hef alltaf langað á ljósmyndanámskeið og skráði mig í febrúar á þetta námskeið. Ég get ekki sagt að ég sé að "fitta" þarna inn því ég mætti auðvitað bara með mína litlu myndavél en allir hinir eru með sínar 100.000 kr. vélar.
Svo .........
Námskeiðið er fínt og fróðlegt en augljóslega gerir maður ekki það sama með þessum tveim gerðum af myndavélum, segir sig sjálft.

Nú það er komið vor sem þýðir hrossapælingar. Ég er komin með höfuðverk af þeim pælingum. Nú þarf ég sem sagt að ákveða hvaða hest Hlökk fær. Er að velta fyrir mér Gaum frá Auðsholtshjáleigu og ætli reyndin verði ekki bara sú.

Nú með hinar merarnar þá eru nokkuð margar pælingar í gangi.
Ég á nefninlega svolítið mikið af merum :)

Posted by Selma at April 25, 2007 12:02 PM

Comments

Snillingur ertu að skella þér í bifjólaréttindin og svo kennsluréttindin :D

Posted by: Harpa at April 26, 2007 11:43 AM

Já Harpa mín og nú ferð þú að geta lært að hjóla hjá mér, gvuð hvað ég hlakka til :)

Posted by: Selma at April 26, 2007 06:00 PM

Úhú, þá fyrst verð ég nú skvísa marr, hehehe

Posted by: Harpa at April 29, 2007 12:01 PM