« Afmæli | Main | Brosi gegnum tárin »

February 16, 2007

Tónleikar í kirkjunni

Í gær voru svæðistónleikar í kirkjunni þ.e. Tónlistarskóli Árnesinga býður okkur foreldrum og öðru áhugafólki að koma og sjá krakkana spila. Það eru nokkrir slíkir tónleikar yfir veturinn, allavega 2 í kirkjunni og svo nokkrir minni bara í skólanum. Í gær voru 25 lög spiluð, á ýmis hljóðfæri, ýmist ein eða í hóp. Virkilega flott og skemmtilegt. Bjartmar var hrifnastur af strák sem spilaði eigin tónsmíð á trommur. Hann var frábær. Svo var flottur fiðluleikari þarna sem spilaði langt lag án nótna, stelpa á svipuðum aldri og Sigurgeir og sé það í hendi mér að ef hann æfði sig meira gæti hann nú kannski spilað án nótna. Ég yrði þá að gera eitthvað í því þ.e. að hann æfi sig meira. Hann spilaði þarna ásamt stelpu sem ég veit ekki hvað heitir.

11.2.2007.jpg

Virkilega flottir tónleikar.

Mæting kl. 12 hjá tannlækni að fá nýju tennurnar, spurning hvað maður tekur næst fyrir í Extreme Makeover :)


Posted by Selma at February 16, 2007 09:09 AM

Comments