« Fór norður | Main | Afmæli »
February 07, 2007
Á hestbak
Fór alla leið í Neðra-Sel á hestbak á Hugrúnu í gærkvöldi. Það var meiriháttar og lá við að ég svæfi með hestafötin því það er svo góð lykt af þeim :)
Guðrún Ben kom í gær og fór með okkur í útsýnisferð upp í Garðyrkjuskóla. Það var rosalega gaman og ég sá að við gætum ræktað banana í gróðurhúsinu okkar. Mörg bananatré þar í gróðurhúsi.
Hún gaf okkur svo blómaskreytingu sem hún hafði gert áður um daginn. Gaman að fá blóm. Í hádeginu kíkti hún aðeins við þar sem Vínbúðin í Hveragerði opnar víst ekki fyrr en kl. 14.00 en hana vantaði flösku í skreytingu sem þau áttu að gera strax eftir hádegið. Ég gaf henni rauðvínsflöskuna sem ég fékk í jólagjöf frá "vinnunni". Reikanði ekki með að ég drykki úr henni á næstunni :)
Tek mér það bessaleyfi að setja mynd af skreytingunni hér með sem hún sendi mér úr símanum sínum. Meiriháttar flott :)

Posted by Selma at February 7, 2007 08:18 PM