« Finnland í morgun | Main | Jóhann farinn til Eyja »
May 30, 2006
Túttan tekin
Ákvað á sunnudaginn að nú væri tíminn kominn.......
tók snuðið af Bjartmari í gær og allt gekk vel í gær en í nótt þegar hann vaknaði og fann ekki snudduna sína fór hins vegar allt á verri veg og hann varð svo reiður að það tók langa stund að tala hann til. Hann vaknaði aftur uppúr 6 mjög reiður og vildi fara til Jóhanns (vinur hans Sigurgeirs) sem gisti hjá okkur í nótt og þegar hann var búinn að vekja þá með grenji sínu fór hann og kúrði hjá honum og varð glaður með það sama. Þeir félagarnir sofnuðu hins vegar ekki aftur.
Spurning hvor okkar verður þreyttari þegar hann kemur af leikskólanum eftir hádegið .........
Framundan er.....
Frí hjá Sigurgeiri í dag vegna starfsdaga kennara, skrítið að geta bara ekki haft það efir hvítasunnu í stað þess að hafa skólaslitin 6. júní. Ég ætla allavega ekki að mæta á þau þar sem ég og allt mitt lið, fyrir utan Begga sem er í Finnlandi að sjá Lordi, ætlum að vera fyrir norðan.
Próf á Selfossi á fimmtudag.
Fara norður á föstudaginn og gera innrás í Eyvindarstaði með strákana, mömmu og hundinn, alltaf sama vandamálið þegar maður fer eitthvað hvað maður á að gera við hundinn. Fanney fær að sitja uppi með okkur í viku ...... spurning hvort það sé ekki aðeins og langt.
Kenna alla hvítasunnuna og fram á miðvikudag þá eru próf á Blönduósi. Fanney og mamma passa bara fyrir mig á meðan :)
Koma kannski aftur suður en held það taki því ekki því ég held það eigi að halda uppá tvöfalda útskrift á Helgavatni 10. júní. Erla útskrifaðist úr MH og Valli úr, ætli það heiti ekki, Fjöltækniskólinn eða eitthvað í þá áttina.
Þá er nú kominn 11. júní vá og ekki nema 10 dagar til Spánarferðar.
Á þeim tíma þarf ég að koma slatta í próf á Selfossi........
Þarf að fara að skipuleggja mig eitthvað :)
Posted by Selma at May 30, 2006 08:22 AM
Comments
Frábært framtak med snudduna. Góda skemmtun í öllum tessum ósköpum haha,, alltaf gaman ad kíkja á fréttir af ykkur *S* og hvad er kallinn ad tvælast til annarra landa á tónleika tegar hann er med snilling heima í stofu, hmm... híhí
Posted by: Lilja at May 30, 2006 02:48 PM
æi..........litli strákurinn.Alltaf erfitt þegar pelinn eða duddann hverfa svona þegjandi og hljóðalaust. Og mamma og pabbi leita ekki neitt.
En þetta á eftir að ganga vel
kveðja til ykkar
gunna g
Posted by: Gunna at June 1, 2006 09:08 PM