« Bíó í dag | Main | Hjóla hjóla »

May 04, 2006

Línuskautar

Búið að tala um það hér á bæ síðan á sumardaginn fyrsta að fara og kaupa línuskauta hana miðdrengnum ;) og var ferðin loksins farin í dag.
Fórum í Everest og fengum þar þessa fínu skauta og allt tilheyrandi.
Þeir meira segja passa á mig ef ég stækka þá.
Þegar heim var komið fékk drengurinn ekkert að prófa þá því sá minnsti varð alveg snar og þurfti að prófa þá fyrst og læt ég hér nokkrar myndir fljóta með af þeim prófunum :)

4.5.2006 015.jpg

4.5.2006 016.jpg

4.5.2006 017.jpg

4.5.2006 018.jpg


Annars er það helst að frétta að Beggi er að fara til Tælands í næstu viku, held hann verði nú örugglega kominn heim fyrir Spánarferðina :) og mín helstu ferðalög þessa dagana eru Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Þorlákshöfn, Hveragerði. Ég er að kenna fjórum konum frá Filippseyjum og er ein á Stokkseyri og þrjár í Þorlákshöfn. Ég fer sem sagt þennan hring sirka annan hvern dag. Margs sem maður verður vísari í þessum ferðum..........

Posted by Selma at May 4, 2006 10:59 PM

Comments

Sætur er hann gaurinn :-)
Hvað kostuðu skautarnir og hvernig hlífar þarf að kaupa? Mig langar svo að kaupa svona dót!
Eru þeir með sílikonhjólum?

Posted by: Harpa at May 5, 2006 05:47 PM

Flottur stráksinn á línuskautunum, tekur sig vel út ;)

Posted by: Arnheiður at May 6, 2006 09:46 PM

Fór í Everest í Skeifunni og fékk stækkanlega skauta, sem voru aðeins dýrari, stærð 35-38 og þess vegna get ég verið í þeim þegar Sigurgeir er ekki úti að skauta.
Þeir kostuðu nærri 6.000 og hlífarnar kostuðu um 3000, man ekki alveg. Saman var þetta um 9.

Posted by: Selma at May 7, 2006 12:04 PM