« Góður gærdagur | Main | Súkkulaði »
April 14, 2006
Norsk-íslenski ættboginn
Alltaf fjör hér.
Kom heim í gær, í kvöld kom norski ættbogi minn í heimsókn þ.e. hluti af honum. Ég ásamt eldri bræðrum mínum eigum nefninlega 6 systkini í Noregi, en það vissuð þið nú.
Heiða mamma þeirra er hér um páskana með 2 yngstu, Ingu og Garðar sem eru 13 og 16. Þetta er í fyrsta skipti sem við 5 hittumst öll saman og áttum við alveg meiriháttar kvöldstund saman.
Hér fylgir ein mynd af þeim ásamt okkur gamla fólkinu auðvitað.

Svo verð ég bara að setja hérna eina mynd af okkur, elsta genginu :)

Posted by Selma at April 14, 2006 10:44 PM
Comments
Selma við VERÐUM að fara að kíkja aðeins saman á síðuna okkar. Eða bara svona við tækifæri :-S
Posted by: Harpa at April 16, 2006 01:33 AM
Hmmm já já Harpa mín, er það útaf þessum myndum eða einhverju örðu :)
Posted by: Selma at April 16, 2006 10:10 AM
Wahahaha, já ég var nú mest að spá í að taka af þér réttindin til að setja myndir inn á síðuna :-D
Nei kjáninn þinn, þetta eru fínustu myndir af ykkur "krökkunum". Ég var nú meira að hugsa um að klára að setja rétta útlitið á kommentasíðuna og svo að sjálfsögðu að koma inn smælingjum til að skreyta kommentakerfið og gera lífið litríkara :-)
Alltaf gaman að eiga sér göfug markmið. Ég er í æfingabúðum núna svo ég verð sennilega klár í slaginn innan árs. ;-)
Posted by: Harpa at April 16, 2006 10:47 AM