« Litli bróðir á afmæli í dag | Main | Kírópraktor »

March 02, 2006

"Tíminn"

Jæja eitthvað líður tíminn nú hratt - síðasta færsla 21. feb og nú er kominn 2. mars, ja hérna og ég man akkúrat ekki neitt hvað ég var að gera alla þessa daga, það hlýtur að hafa verið afar merkilegt allt saman fyrst ég man það ekki. Ég man þó að ég er búin að fara í bæinn að vinna nokkrum sinnum, í bæinn á hundafund, baka bollur, kaupa bollur, eta bollur, austur á hestbak, kenna fyrir eitt próf á Selfossi, fara með bílinn í smur, vetrarfrí í skólanum, öskudagsskemmtun í íþróttahúsinu, ekkert saltkjöt og baunir á þessu heimili, Beggi fékk saltkjöt í vinnunni sinni og líka Bjartmar í sinni vinnu :) - Sigurgeir vildi sko ekki kjöt og þá var ég ekkert að nenna að hafa fyrir mig eina - ekki er hægt að leggja á B-in að fá 2x saltkjöt sama daginn. Strákarnir fóru í sund á laugardaginn og ég var bara að pappírast á meðan eins og marga aðra daga....... og alveg dásamlegir tímar framundan í því, skattframtal og svoleiðis :)

Posted by Selma at March 2, 2006 09:34 PM

Comments