« Dagurinn í dag | Main | Fermingar, fermingar........ »
March 20, 2006
Snilldar helgi.......
Helgin var snilld í einu orði sagt :)
Fór norður á fimmtudaginn og kenndi slatta þá, kenndi allan föstudaginn en náði að komast í hesthúsið hans Tryggva og aðeins í Reiðhöllina og sá nokkur flott atriði sem voru á sýningunni á laugardaginn. Sá einn af mínum uppáhaldshestum hann Laufa frá Kollaleiru og eiganda hans og náði meira segja mynd af þeim, bara inní hesthúsi en það var bara allt í lagi. Ég fékk meira segja að koma við hestinn ....... ;)

Af merunum mínum öllum er það hins vegar að frétta að Hylling er í góðu formi, Hugrún er klárgeng og er komin í frí og Hending er meidd og verður í fríi í einhverjar vikur í viðbót. Svo þar fór draumurinn um þrjár á landsmót en maður á sér bara aðra drauma í staðin :)
Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur og ég fór víða í kaffi og átti virkilega góðar stundir með góðu fólki.......
Brunaði heim og ætlaði að vera komin heim um 15 en það dróst mjög svo. Beggi minn reddaði bara matarboðinu, átti nú ekki von á öðru en að honum tækist það bara vel upp. Hann fékk reyndar þvílíkt tak í bakið þegar þeir feðgar voru að ryksuga, ekki gott að gera suma hluti of sjaldan..... svo við erum hérna bæði skökk og skæld í bakinu :)
Á leið minni heim kom ég við í Kópavogi hjá Sollu frænku minni en hún var búin að smíða fyrir mig þessa þessa fallegu skartgripi sem ég ætla að gefa í skírnar-fermingar-afmælisgjafir. Tek myndir af þeim og set hér inn þegar fermingar-skírnar-afmælisboðin verða búin. Hún er algjör snilli og frábærlega fallegir hlutir sem hún gerir. Ég mæli eindregið með henni.
Nema hvað ég var ekki komin heim fyrr en kl. 18 og þetta reddaðist auðvitað allt saman. Allir mættir uppúr 19.30, þ.e. mamma, Albert og fjölskylda, Gummi og fjölskylda og Fanney og fjölskylda. Virkilega notalegt kvöld og góður matur hjá Begga.
Ég þvoði upp hins vegar :)
Hér eru myndir af yngri kynslóðinni.


Sunnudag fórum við í Neðra-Sel í skírnarveislu sem byrjaði auðvitað með skírnarathöfn í kirkjunni. Falleg messa og daman fékk nafnið
Edda Margrét.

Flottust og getið þið hver saumaði þennan kjól. Þessi kjóll var saumaður á Reykjaskóla árið 1980 held ég, svo hann er nú alveg kominn til ára sinna eins og eigandinn, hahahahahahaha. Yndislegt að þau vildu skíra hana í þessum kjól og Edda Margrét tók sig vel út í honum sem og önnur börn sem hafa verið skírð í honum.

Sumir voru hins vegar frekar þreyttir og lögðu sig bara á meðan á messu stóð

Posted by Selma at March 20, 2006 01:40 PM
Comments
Það er alltaf gaman að lesa eitthvað um merina Hugrúnu :) Ég verð nú að gerast svo fræg einhvern tímann að berja hana augum :)
Posted by: Hugrún Sif at March 24, 2006 04:23 PM
Takk fyrir matarboðið og flottar myndir, sérstaklega af þessum sem fékk sér blund;)
Posted by: Arnheiður at March 24, 2006 09:57 PM
Já það er ekki slæmt að heita í höfuðið á þér Hugrún mín. Kannski þú fáir bara að fara á hestbak líka. Hún er að vísu svolítið klárgeng :)
Takk Arnheiður mín, virkilega gaman að fá ykkur. Ég bara elska að halda veislur fyrir ættingja mína og vini líka :)
Posted by: Selma at March 25, 2006 11:11 AM