« Myndir | Main | Snilldar helgi....... »

March 16, 2006

Dagurinn í dag

Beggi er í fríi í dag og á morgun af því hann er búinn að vinna tvær helgar í röð og þar sem ég þar auðvitað að skreppa norður að kenna þá nýti ég mér það núna.

Dagurinn í dag byrjaði hins vegar á því að ég skrapp til kírópraktorsins strax í morgun, fór svo beint upp í Miðengi og svo á Selfoss að kenna, síðan í Hveragerði að ná í eina og aftur á Selfoss og svo er bíllinn í prófi núna. Kl. 4 næ ég í bílinn bruna norður, kenni í kvöld, á morgun og kannski fram að hádegi á laugardag og suður aftur því það er matarboð hérna á laugdardagskvöldið sem Beggi sér auðvitað um - hann klikkar ekki á slíkum smámunum. Á sunnudag förum við svo í skírnina hjá litlu dömunni í Neðra-Seli og ég hlakka ekkert smá til.

Posted by Selma at March 16, 2006 02:38 PM

Comments

já há ég var bara að komst að því að þú ættir síðu núna! ég verð að segja að þetta er allveg magnað hjá þér!:) en já...við bara sjáumstum:)

Posted by: Erla Rún :) at March 21, 2006 08:26 PM