« Skautaferð | Main | Litli bróðir á afmæli í dag »
February 16, 2006
Síðan síðast
Margt gert síðan síðast :)
Í gær var ég passa þessa litlu dúllu á meðan foreldrarnir fóru á fund. Hún svaf mest allan tíman.
Þetta er auðvitað prinsessan í Neðra-Seli og þau Maggi og Svanný fóru á hestafund en ekki hvað.

Kvöldið áður fór ég á hestbak og okkur Toppu fer fram, hins vegar engin mynd til af því :)
Strákarnir fóru í sund á laugardagsmorguninn og svo fórum við í afmælið hans Þórgnýs en hann varð 11 ára 8. feb. Til hamingju með það. Það var alveg meiriháttar að hitta alla eins og alltaf og ekki er verra að komast í kökurnar hennar Jóhönnu, þær eru alveg geggjaðar.
Á sunnudaginn ákváðum við að drífa okkur í fjöruna eins og við gerðum stundum í fyrra, það var reyndar svolítið hvasst og Bjartmari fannst sandurinn ekkert sérstaklega góður í augun svo við vorum ekki lengi.
En gott að geta gefið sér stund til að íhuga :)


Við erum líka búin að uppgötva arininn, hann er alveg meiriháttar

Síðastliðinn föstudag skruppum við gamla settið norður, fram og til baka og kíktum á eina jörð......... mamma var hjá strákunum á meðan, þeir mega ekki missa af neinu í skólanum. Allt gekk vel :)
Nú svo er ég að spá í að fara norður um helgina að kenna en veðrið er nú ekki beint þesslegt en það er nú heill dagur til að ákveða sig svo við sjáum til.
Posted by Selma at February 16, 2006 09:36 AM
Comments
Og hvernig leist ykkur á það sem þið sáuð - vil bara vita hvort einhver von sé á ykkur hingað "heim".
Vonandi gefst stund til kaffisopastopps á Hóló ef þú kemur norður.
Sjáumst annars hressar - hvar sem er og hvenær sem er...
Berglind
Posted by: Berglind at February 16, 2006 08:36 PM
Og og............hvað með jörðina?
comment eða hvað?
Kv Gunna
Posted by: Gunna at February 18, 2006 02:05 PM
Já Gunna mín, bíddu bara róleg þú færð að vita ef eitthvað gerist, allt í rólegheitunum ennþá :)
Posted by: Selma at February 23, 2006 09:00 AM