« Jólin koma og fara | Main | Kominn tími til :) »
January 01, 2006
Gleðilegt ár :)
Kæru vinir og vandamenn og aðrir þeir sem lesa þetta:
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Hér koma myndir frá gærkveldinu en það virtist alveg vera nóg til af flugeldum hér í nágrenninu þvílíkt og annað eins skotið upp. Við vorum nú frekar hógvær í þessu, en eins og alltaf virðist karlpeningurinn fá eitthvað útúr þessu, Gústi Vals kom líka með smá en hann var hjá okkur. Ætlaði nú að taka fleiri myndir en tíkargreyið var gjörsamlega að farast úr hræðslu svo "einhver" varð að passa hana.


Svo eru hérna tvær myndir af "hestum". Fórum í mikinn hestaleiðangur í gær. Byrjuðum á að fara og fá lánaða kerruna hjá Helgu vinkonu minni í Miðengi og tókum Gátu með okkur í kerruna sem Helga er búin að passa fyrir okkur í tæp tvö ár. Hún er undan Gerplu og Þóroddi sem er allrabesti graðhestur á landinu :) eða þannig. Fórum með hana í Neðra-Sel í hagagöngu.

Þar vorum við svo heppin að fá að smala stóðinu inn, þau settu það inn fyrir nóttina svo það stykki ekki út um allar áttir vegna flugeldaskothríðar. Þar hittum við fyrir Hlökk og knúsuðum hana í bak og fyrir og síðan hittum við Hugrúnu sem er þar í tamningu og knúsðum hana í bak og fyrir og svo hittum við nýju merina okkar "Toppu" það vantar á hana toppinn og knúsuðum hana í bak og fyrir og svo fórum við í kaffi og knúsuðum svo húsráðendur í bak og fyrir þegar við fórum. Frábær ferð í alla staði og vorum komin heim upp úr fimm þegar við vorum búin að skila kerrunni, takk fyrir það allt saman.

Í dag erum við svo að fara til mömmu í mat og þar hittum við alla :)
Posted by Selma at January 1, 2006 12:34 PM
Comments
Gleðilegt ár kæra fjölskylda og takk fyrir það gamla.
Knus og kossar brekkusniglarnir
Posted by: Sigga og co at January 2, 2006 10:44 PM
Takk fyrir elsku brekkusniglar allir saman, hlakka til að sjá ykkur á þessu nýja ári :)
Posted by: Selma at January 3, 2006 08:47 AM