« Með á prjónunum | Main | Hangið heima! »
October 27, 2005
Rúnturinn í Hveragerði
Eitthvað svo mikið að gera eða hvað..... engin skrif í marga daga.
Við erum auðvitað bæði löngu komin heim og ég er að fara norður aftur á morgun ef veðrið verður gott, sýnist nú ekki vera útlit fyrir það reynar, allavega ekki á laugardag og sunnudag, sé til hvort það breytist eitthvað í kvöld, þ.e. veðurspáin!
Nú við Bjartmar erum farin að taka Hveragerði út á morgnana því ég á víst ekki vistun fyrir hann fyrr en kl. 8 - ekki 2 mín í eins og ég hef verið að gera undanfarna 2 mánuði. Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það að vera of sein með Sigurgeir í skólann en ég hef bara farið með Bjartmar strax þar á eftir sem er þá u.þ.b. 2-4 mín í 8.
Nema hvað á mánudagsmorgunn þegar ég mætti með Bjartmar var ég spurð að því hvort ég vildi fá korterið, ég kom alveg af fjöllum en þá var mér bent á það að ég kæmi alltaf með hann of snemma því ég væri með vistun frá kl. 8 en ekki 2 mín í eins og ég hef verið að koma með hann sem þýðir korter.
Þannig að núna er það spurningin á ég að fara með Sigurgeir seint í skólann, sem væri óþolandi fyrir hann, fara á rúntinn í Hveragerði í ca 3-5 mín á hverjum morgni eða kaupa þetta andsk...... korter sem mér finnst óþolandi þar sem ég kaupi tíma til 13 og er alltaf búin að ná í hann uppúr hálf eitt. Arggggg..............
Í fyrradag var bekkjarkvöld hjá 3. bekk og það var mjög vel heppnað, allir krakkarnir komu með atriði, misstór og löng en flest frumsamin sem var mjög gaman. Sigurgeir valdi að vera í les- og brandarahópnum en þar voru þau 3 og hann las sögu sem hann samdi í fyrra. Síðan var tertuhlaðborð, svona eins og ein góð fermingarveisla og það var auðvitað frábært. Heim fórum við glöð og ánægð.
Posted by Selma at October 27, 2005 09:46 AM
Comments
sæl esskan...bara að láta vita af mer..
kv gusti
Posted by: gusti at October 29, 2005 05:06 PM
æi hvað er nú gott að vita af þér þarna hinumegin :)
Posted by: Selma at October 29, 2005 10:50 PM