« Annar frændi | Main | Með á prjónunum »
October 19, 2005
Kleif hamarinn
Geðveikt veðrið þessa dagana. Búin að klífa hamarinn í morgun, það var auðvitað meiriháttar eins og alltaf. Fór líka í gær, vá :-)
Nú hér gerist svo sem ekki neitt. Hitti Möggu í næsta húsi í morgun hún var líka í morgungöngu og við ákváðum að hittast í kaffi næsta miðvikudagsmorgunn og fá aðrar tvær með okkur hérna úr götunni, þ.e. þessum botnlanga. Það eru 10 hús við hann og við erum 4 heima á morgnana, ein slapp nýlega út að vinna fyrir hádegi svo hún fær bara ekkert að vera með. Það verður gaman.
Beggi er enn í USA-hreppi og kemur um helgina, alltaf sama fjörið hjá honum skilst mér. Spurning hvort ég ætla norður um helgina eða ...... hmmm alltaf mál með þessa hunda. Annars er Salka búin að vera í hvolpaleyfi í 4 mánuði hjá Helgu og hún kom svo óskaplega vel vanin til baka þannig að það er núna spurning hvort við sendum ekki bara Perlu þangað líka svo hún verði einhvern tíman að hundi :-)
Posted by Selma at October 19, 2005 11:34 AM
Comments
Æ rakst inn á síðuna þína það er gott að þú kannt að meta hamarinn þetta kemur allt Selma mín og frábært að heyra af öllum þessum "heimilisfræðingum" í götunni hafðu það gott kveðja Hulda (mamma Kristjáns fyrirmyndarökumanns þökk sé kennaranum)
Posted by: Hulda at October 21, 2005 10:50 PM
Hulda mín það er nú ekkert æ að rekast inná síðuna mína og takk fyrir, veit að Krisján er og verður fyrirmyndarökumaður, þökk sé auðvitað foreldrunum líka :-)
Endilega dettu hér inn aftur.
Posted by: Selma at October 22, 2005 10:01 PM