« Mikið að gera | Main | 32.000 kr. »
September 28, 2005
Margt gert í dag
Sigurgeir varð mikið glaður þegar við vorum búin að fara á Selfoss í dag og láta taka saumana úr sárinu. Þetta leit bara vel út og engin ígerð í þetta skiptið. Vonandi að þetta verði til friðs framvegis.
Nema hvað haldiði ekki að við Bogga höfum farið út að hjóla í kvöld, loksins rann þessi langþráði dagur upp að við vorum boðaðar í tíma kl. 18.30 í kvöld. Meiriháttar gaman nema svolítið kalt á puttunum.
Þá er bara að fara að drífa sig í bóklega prófið svo það sé frá og vonandi náum við þessu fyrir veturinn :-)
Þar sem þetta er fréttnæmt þá var auðvitað tekin af okkur mynd.....

Posted by Selma at September 28, 2005 09:41 PM
Comments
Allt er fertugum fært :)Sko hvað mín er flott í gallanum, og með öll þessi hestöfl á milli fóta sér.
Posted by: gunna at September 29, 2005 05:28 PM
ja loksins fær hún fleiri en eitt hestafl :)
kv gusti
Posted by: gusti at September 30, 2005 10:46 AM
já þetta er auðvitað ekkert annað en frábært, spurning er bara hvort virkar betur eitt eða mörg :-)
Posted by: Selma at September 30, 2005 11:25 AM