« Berjamó | Main | Sólberin mín.... »
August 23, 2005
Spræk í morgun
Hér voru allir, nema hundurinn, ræstir kl. 05.30 til að fara á Keflavíkurflugvöll að ná í Begga. Hann er sem sagt kominn heim :-)
Fórum beint á skólasetningu og Sigurgeir mikið glaður því Magga heldur áfram með bekkinn hans enda sagði hann: "Magga ég er svo glaður að sjá þig".
Nú ég hlýt að hafa farið fram úr vitlausu megin núna undanfarna daga því ég ákvað að vera "góð" mamma og lét Begga kaupa playstation 2 fyrir Sigurgeir, nota bene hann fær hana í afmælisgjöf svo nú er að endurraða öllu húsinu fyrir þetta playstation dr..... því ekki fer ég að setja þetta í herbergið hans eða......
Í gær hringdi ég í einhvern einkaþjálfara og vildi komast í þjálfun áður en ég læki niður hérna í sófanum, dísús ekki veit ég hvað er að koma yfir mig en þetta gengur ekki svona lengur held ég.
Nú svo er bara að halda áfram í fjarnámi í Iðnskólanum og ég er að hugsa um að fara í MOM103 sem er freehand og flash :-)
Svo er nú það.......
Posted by Selma at August 23, 2005 12:27 PM
Comments
hallo hallo....mer líst vel á playstation 2...eg kem í heimsókn :)
kv gus
Posted by: gusti at August 26, 2005 09:43 AM
Til hamingju með að vera komin með kallinn heim :-)
Hvernig er annars með þessa einkaþjálfara, er ekki nóg að hugsa bara rosalega mikið um að vilja komast í form til að það takist?
Ég er alla vega enn að reyna það (",)
Posted by: Harpa at August 26, 2005 01:21 PM
Já ég er nú búin að hugsa um þetta í mörg ár og það hefur einhvern veginn ekki verið að gera sig svo ætli maður verði ekki að láta sig hafa það :-)
Posted by: Selma at August 26, 2005 11:50 PM