August 17, 2005
Ég á afmæli :-)
Bara að minna ykkur á að ég á afmæli.....
Við Sigurgeir fórum til læknis í gær og hann þarf aftur í aðgerð :/ Það var nú svona nokkuð víst að þess þyrfti þar sem svæðið var allt svo sýkt þegar hann fór í hinar aðgerðirnar að það náðist ekki að hreinsa það alveg. Það fór greinilega að safnast í holuna í júlí og þegar hún var orðin ískyggilega stór fórum við með hann á Selfoss og þar var það hreinsað og hann á sýklalyf. Það hefur verið til friðs síðan en Þráinn sagði að best væri að reyna að ná þessum poka sem eftir er og þá ætlar hann að minnka örið í leiðinni. Þetta verður í september.
Við lentum í mat hjá Albert og Jóhönnu í gærkvöldi og fengum þennan æðislega fisk, takk fyrir það.
Nú hvað á svo að gera í dag, ég ætla EKKI að ryksuga þó svo ég þurfi þess greinilega. Er að hugsa um að fara með Sigurgeir í bíó en þá verð ég að bögga einhvern með Bjartmar. Ég geri það bara, það er góð hugmynd.
Posted by Selma at August 17, 2005 09:39 AM
Comments
Til hamingju með daginn í dag :)
Kveðja frá Blönduósi
Posted by: Hugrún Sif at August 17, 2005 12:35 PM
Til hamingju með daginn elsku Selma mín.
Sem minnir mig á það... einhvern tímann lofaði ég þér smælingjum hérna á kommentakerfið þitt....
Úbs, ég er búin að steingleyma því aftur :-D
Posted by: Harpa at August 17, 2005 06:24 PM
Takk takk og já eitthvað rámar mig í það Harpa mín, bara við tíma.
Við Sigurgeir fórum í bíó á madagaskar, mjög skemmtileg mynd.....
Posted by: Selma at August 17, 2005 07:40 PM
Til hamingju með daginn elsku vinkona.
Vona að hann hafi verið ánægjulegur.
Knus og kossar frá okkur á Brekkubyggð 4.
Posted by: Sigga og co at August 17, 2005 09:48 PM
Til hamingju með daginn ;o)
Posted by: Sibbi at August 17, 2005 10:20 PM
síðbúnar hamingjuóskir með daginn Selma mín.
ég myndi fara að tékka hvort gráu hárin séu farin að bæra á sér :)
Ekki að það sé neitt miður, bara virðuleikamerki
kv gunna
Posted by: Gunna at August 19, 2005 08:43 PM
ég ætlaði nú bara að óska þér til hamingju með daginn um daginn.. :)... betra er seint en aldrei :)
Posted by: Steinunn Hulda at August 23, 2005 05:05 PM