« Tekin út | Main | Sá græni »
June 10, 2005
Sundferð
Þá er Beggi farinn aftur til Þýskalands og kemur aftur á mánudaginn. Við fórum loksins í sund í dag því Sigurgeir losnaði við gipsið svo við stormuðum í sund. Get ekki sagt að mér hafi fundist neitt skemmtilegt því auðvitað vildi Bjartmar fara í allt það sem strákarnir fóru í, þ.e. Sigurgeir og Benni sem er í heimsókn hjá Sigurgeiri og fer með okkur norður á sunnudaginn. Sundferðin, sem var frekar stutt sökum óánægju Bjartmars með mömmu sína að nenna ekki í rennibrautirnar með honum, endaði auðvitað í ísbúðinni. Mér fannst það miklu skemmtilegra en sundið, ég held það sé eitthvað ættgengt þetta með ísinn.
Aftur til Reykjavíkur á morgun að kenna svolítið og svo er stefnan á Blönduós á sunnudaginn að kenna þar næstu viku. Voðalega verður það gaman.........
Posted by Selma at June 10, 2005 05:36 PM
Comments
Hvaða hvaða??????????
Af hverju ekki að skella sér í rennibraut með barninu, hvað er flottara en við mömmurnar í vatnsrennibrautunum, rassinn fyrst og brjóstin síðust :)nei bara ofurlítið djók. En farðu næst, annars ættleiði ég drenginn.
Posted by: gunna at June 10, 2005 10:15 PM
Biddu nú við verið að fara norður? og ég sem ætlaði að koma í heimsókn í vikunni.
Jæja góða skemmtileg ertu :(
Posted by: Sigga at June 11, 2005 01:02 PM
jamms, veit það Sigga mín en ég veit líka að þú kemur aftur frá útlandinu og þá kemur þú bara og stoppar voðalega lengi :-)
Posted by: selma at June 11, 2005 07:52 PM